Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 18.2.2012
| 22:03
| Uppfært
19.2.2012
12:23
Löwen aftur í basli með Guif
Rhein-Neckar Löwen, undir stjórn Guðmundar Þ. Guðmundssonar, vann nauman sigur á sænska liðinu Guif, undir stjórn Kristjáns Andréssonar, 39:36, í seinni leik liðannna í 16-liða úrslitum EHF-bikarsins í handknattleik í kvöld.
Löwen vann fyrri leikinn í Eskilstuna í Svíþjóð, 35:34, og sigraði því samanlagt 74:70.
Róbert Gunnarsson skoraði eitt mark fyrir Löwen og Haukur Andrésson skoraði tvö mörk fyrir Guif sem veitti Þjóðverjunum mun harðari keppni en búist var við.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






