Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 18.2.2012
| 18:14
| Uppfært
19:31
Toppliðin tvö með örugga sigra
Valur og Fram unnu örugga sigra í leikjum sínum í dag í N1-deild kvenna í handknattleik. Fram vann KA/Þór með átta mörkum norðan heiða, 28:20, og Valur vann Hauka á Hlíðarenda með 20 mörkum, 44:24.
Fram og Valur eru því áfram með gott forskot á toppi deildarinnar en bæði lið hafa 22 stig. ÍBV og HK koma næst með 14 stig.
Línumaðurinn öflugi Elísabet Gunnarsdóttir var markahæst hjá Fram með 10 mörk en Ásdís Sigurðardóttir skoraði átta fyrir KA/Þór.
Dagný Skúladóttir var markahæst hjá Valskonum með 10 mörk og Marija Gedroit skoraði jafnmörg fyrir Hauka.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






