Kiel og AG í tveimur efstu sætunum
Aron Pálmarsson skoraði eitt marka Kiel þegar liðið vann öruggan sigur á Ademar León í D-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag, 38:28. Íslendingaliðið AG Köbenhavn vann frækilegan sigur á Montpellier í Frakklandi, 31:27, og því er ljóst að AG og Kiel enda í tveimur efstu sætum riðilsins.
Kiel er efst í riðlinum með 15 stig en AG er með 14. Liðin mætast í úrslitaleik um efsta sætið í Danmörku eftir viku. Ademar León er með 11 stig í 3. sæti, Montpellier 8 í 4. sæti og Pick Szeged með 6 stig í 5. sæti en fjögur efstu liðin komast áfram í 16 liða úrslitin.
Íslendingarnir í AG létu til sín taka í sigrinum í Frakklandi. Upplýsingar um markaskorara eru ekki komnar inn á heimasíðu EHF en samkvæmt dönskum miðlum skoraði Guðjón Valur Sigurðsson átta mörk og þeir Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn Guðjónsson voru einnig á meðal markaskorara.






