Mikill áhugi fyrir leiknum í Mannheim
Mikill áhugi er fyrir vináttulandsleik Þjóðverja og Íslendinga í handknattleik karla sem fram fer í Mannheim 14. mars. Um 2.500 miðar eru þegar seldir af þeim 10 þúsund sem í boði eru.
Þetta kom fram á blaðamannafundi sem þýska handknattleikssambandið hélt í Mannheim á föstudaginn þar sem landsliðsþjálfararnir Martin Heuberger og Guðmundur Þórður Guðmundsson sátu fyrir svörum auk Uwes Gensheimers og Róberts Gunnarssonar.
Á þriðja tug fjölmiðlamanna mætti á fundinn. Mikill áhugi fyrir leiknum hefur komið á óvart þar sem þýska landsliðinu gekk ekki sem skyldi á Evrópumeistaramótinu í Serbíu í síðasta mánuði og náði m.a. ekki helsta markmiði sínu sem var að tryggja sér sæti í forkeppni Ólympíuleikanna sem fram fer í apríl.
Heuberger segist ætla að nota leikinn gegn Íslendingum til þess að hefja undirbúning fyrir landslið sitt fyrir leikina um sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer á Spáni í byrjun í næsta árs.
Ljóst er að Guðmundur mun ekki geta stillt upp sínu sterkasta liði gegn Þjóðverjum. M.a. er ljóst að leikmennirnir fjórir sem eru hjá AG Köbenhavn, Arnór Atlason, Guðjón Valur Sigurðsson, Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn Guðjónsson, fá ekki leyfi til taka þátt í leiknum í Mannheim þar sem AG leikur í dönsku deildinni sama kvöld og landsleikurinn fer fram. AG mætir þá Nordsjælland sem Ólafur Guðmundsson spilar með og þar með ljóst að hann tekur vart þátt í leiknum heldur.
Ekki er um alþjóðlegan leikdag að ræða 14. mars og því getur HSÍ ekki krafist þess að fá þá leikmenn sem uppteknir eru með félagsliðum sínum tiltekinn dag til þess að taka þátt í landsleiknum.






