Þórir og félagar í góðum málum
Þórir Ólafsson og félagar í pólska liðinu Kielce komu sér upp í 2. sæti B-riðils Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í dag með öruggum sigri á Bjerringbro-Silkeborg, liði Guðmundar Árna Ólafssonar, í dag, 37:26.
Þórir skoraði fimm mörk fyrir Kielce og var þriðji markahæstur.
Í sama riðli sóttu lærisveinar Dags Sigurðssonar í Füchse Berlin lið Atlético Madrid heim og máttu sætta sig við fimm marka tap, 32:27. Þetta þýðir að Berlínarrefirnir eru komnir niður í 5. sæti en fjögur efstu liðin komast áfram. Þeir mæta Bjerringbro-Silkeborg í lokaumferðinni og komast áfram með sigri þar. Alexander Petersson lék ekki með vegna meiðsla.
Staðan í þessum hnífjafna riðli fyrir lokaumferðina um næstu helgi, þar sem Kielce tekur á móti Medvedi, er sem hér segir:
Atlético Madrid 16
Kielce 10
Veszprém 10
Medvedi 9
Füchse Berlin 9
Bjerringbro-Silkeborg 0






