Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 21.2.2012
| 7:33
| Uppfært
10:58
Guðjón Valur í liði umferðarinnar (myndskeið)
Guðjón ValurSigurðsson, leikmaður danska meistaraliðsins AG Köbenhavn, var valinn í lið umferðarinnar í Meistaradeild Evrópu fyrir frammistöðu sína í sigurleiknum gegn franska meistaraliðinu Montpellier.
Guðjón Valur skoraði átta mörk og var markahæstur í danska liðinu sem með sigrinum tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. Guðjón er í 10. sæti yfir markahæstu leikmenn í Meistaradeildinni en hann hefur skorað 49 mörk. Hann er annar markahæsti leikmaður AG Köbenhavn í Meistaradeildinni, sá markahæsti er stórskyttan Mikkel Hansen með 62 mörk.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






