Kári og félagar missa stig
Dregin verða tvö stig af þýska handknattleiksliðið Wetzlar, sem Kári Kristján Kristjánsson landsliðsmaður leikur með, þar sem það tefldi fram ólöglegum leikmanni í kappleik við Göppingen í þýsku 1. deildinni á dögunum.
Wetzlar vann fyrrgreindan leik við Göppingen en þar sem í ljós hefur komið að Andrej Klimovets var ekki löglegur með liðinu í leiknum hefur aganefnd þýska handknattleikssambandsins úrskurðað Wetzlar tap í leiknum. Félagið hefur nú hálfan mánuð til þess að ákveða hvort það sættir sig við niðurstöðuna eða grípur til varna.
Klimovets, sem er 37 ára gamall og var m.a. í þýska landsliðinu þegar það var heimsmeistari fyrir fimm árum, skrifaði undir skammtímasamning við Wetzlar í byrjun febrúar. Síðar kom í ljós að hann var enn samningsbundinn neðrideildarliðinu TSG Hassloch og var þar með ekki heimilt að leika með Wetzlar í umræddum leik.
Wetzlar situr um þessar mundir um miðja þýsku 1. deildina með 18 stig að loknum 20 leikjum.






