Löwen fer til Slóveníu

Guðmundur Þórður Guðmundsson fer með sína menn til Slóveníu. stækka

Guðmundur Þórður Guðmundsson fer með sína menn til Slóveníu. mbl.is/Golli

Guðmundur Þ. Guðmundsson og lærisveinar hans í Rhein-Neckar Löwen drógust í dag gegn slóvenska liðinu Gorenje Velenje í átta liða úrslitum EHF-bikarsins í handknattleik.

Guðmundur, Róbert Gunnarsson og samherjar í Löwen lentu í basli með Guif frá Svíþjóð, undir stjórn Kristján Andréssonar, í 16-liða úrslitunum en sigruðu með fjórum mörkum samanlagt. Fyrri leikurinn gegn Velenje fer fram í Slóveníu en leikið er helgarnar 17./18. mars og 24./25. mars.

Björgvin Páll Gústavsson og félagar í Magdeburg drógust gegn Tatran Presov frá Slóvakíu og fer fyrri leikurinn fram í Slóvakíu. Magdeburg komst áfram á ævintýralegan hátt um helgina þegar liðið sló út Nexe frá Króatíu með einu marki samanlagt.

Leikirnir í 8-liða úrslitum eru þessir:

Dinamo Minsk (Hvíta-Rússlandi) - Göppingen (Þýskalandi)
Gorenje Velenje (Slóveníu) - Rhein-Neckar Löwen (Þýskalandi)
Tatran Presov (Slóvakíu) - Magdeburg (Þýskalandi)
Saint Raphael (Frakklandi) - Dunkeque (Frakklandi)

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is