Sigurbergur kominn af stað
Sigurbergur Sveinsson er farinn að spila með RTV Basel á nýjan leik eftir að hafa verið frá keppni síðan um miðjan nóvember vegna meiðsla í hné.
Sigurbergur skoraði tvö mörk um liðna helgi þegar RTV Basel og GC Amicitia Zürich skildu jöfn, 27:27. Sigurbergur og félagar voru óheppnir að fara ekki með bæði stigin úr leiknum því þeir voru með tveggja marka forskot þegar rúmar tvær mínútur voru til leiksloka.
Tvær umferðir eru eftir af svissnesku A-deildinni í handknattleik. RTV Basel er í sjötta sæti um þessar mundir en sex efstu liðin að deildarkeppninni lokinni berjast um meistaratitilinn. Basel-liðið er langt frá því öruggt um sæti í keppni sex efstu liðanna. Basel hefur nú 20 stig en St. Otmar er stigi á eftir og Lakers Stäfa hefur tveimur stigum færra en Sigurbergur og félagar.
Basel fær Bern Muri, sem er í fimmta sæti, í heimsókn á fimmtudagskvöldið, og sækir St. Otmar heim í lokaumferðinni þriðjudaginn 28. febrúar.






