Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 21.2.2012
| 20:50
Tvis Holstebro steinlá
Íslendingaliðið Team Tvis Holstebro fékk stóran skell þegar liðið mætti Midtjylland í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Midtjylland vann níu marka sigur, 30:21. Rut Jónsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir skoruðu sitt markið hvor fyrir Team Tvis Holstebro.
Team Tvis Holstebro er í öðru sæti deildarinnar með 31 stig eins og topplið Viborg sem á leik til góða. Næst koma Randers og Midtjylland með 28 stig.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






