Arnór eini af Íslendingunum á blaði

Arnór Atlason var sá eini af Íslendingunum sem komst á blað. stækka

Arnór Atlason var sá eini af Íslendingunum sem komst á blað. mbl.is/Hilmar Þór

AG Kaupmannahöfn átti ekki í miklum vandræðum með að leggja Skive að velli í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld en lokatölur voru 28:17. Staðan í hálfleik var 12:8 en leikið var í Skive og því langt ferðalag sem leikmenn AG lögðu á sig.

Arnór Atlason, fyrirliði liðsins, var eini Íslendingurinn af fjórum sem komst á blað en hann skoraði eitt mark. Snorri Steinn Guðjónsson, Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson komust ekki á blað en gera má ráð fyrir því að þeir hafi verið hvíldir fyrir stórleikinn gegn Kiel á sunnudag í Meistaradeildinni.

Markahæstur hjá AG var Nicklas Ekberg sem skoraði átta mörk. Stórskyttan Mikkel Hansen hafði frekar hægt um sig og var með fjögur.

Guðmundur Árni Ólafsson skoraði tvö mörk þegar lið hans Bjerringbro-Silkeborg tapaði óvænt á heimavelli fyrir Viborg 29:27 en það munaði einnig tveimur mörkum á liðunum í hálfleik. Guðmundur Árni og félagar eru þrátt fyrir tapið enn í öðru sæti deildarinnar en Kolding, sem á leik til góða og er með jafnmörg stig eða 28, getur náð öðru sætinu.

AG er sem fyrr langefst á toppi deildarinnar nú með 37 stig.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is