Löwen nýjasta fórnarlamb Kielar
Alfreð Gíslason er á hraðri leið að 17. þýska titlinum í þýsku deildinni með lið sitt Kiel. www.thw-provinzial.de
Rhein-Neckar Löwen, undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar landsliðsþjálfara, þurfti að játa sig sigrað eins og öll önnur lið í þýsku 1. deildinni í handknattleik, þegar liðið mætti Kiel í kvöld. Eftir 21 leik hefur Alfreð Gíslason, þjálfari Kielar, stýrt liði sínu til sigurs í þeim öllum og að þessu sinni var Löwen fórnarlambið en lokatölur voru 33:25. Staðan í hálfleik var 17:9 en munurinn varð mestur 10 mörk í seinni hálfleik.
Þetta var sannkallaður Íslendingaslagur en auk þjálfaranna eru þeir Aron Pálmarsson hjá Kiel og Róbert Gunnarsson hjá Löwen. Róbert komst ekki á blað en Aron skoraði eitt mark. Jafnræði var með liðunum í byrjun en eftir að staðan varð 4:4 náði Kiel frumkvæðinu með þremur mörkum í röð og hélt forystunni allt til loka. Markahæstur hjá Kiel var Filip Jicha með 10 mörk en Uwe Gensheimer skoraði átta mörk fyrir gestina.
Tap Löwen er ekki góð tíðindi því liðið getur nú fallið úr 4. sætinu ef Magdeburg vinnur þann leik sem þeir eiga til góða á laugardaginn. Kiel stefnir hins vegar hraðbyri að enn einum Þýskalandstitlinum eða þeim 17. í röðinni. Síðast varð félagið þýskur meistari árið 2010 en Hamburg stöðvaði sigurgöngu þeirra í fyrra sem hafði þá staðið yfir frá því 2005.
Aftur mætir Kiel Íslendingaliði í næsta leik en það verður í Kaupmannahöfn gegn AG í Meistaradeildinni á sunnudaginn. Liðin berjast þá um efsta sætið í riðlinum þar sem Kiel situr nú. AG er hins vegar aðeins stigi á eftir.






