Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 23.2.2012
| 14:41
Anton og Hlynur til Póllands
Handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson verða í eldlínunni með flautur sínar á lofti í Kielce í Póllandi á laugardaginn þegar þeir dæma viðureign Vive Kielce og Medvedi í lokaumferð B-riðils Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla.
Af þeim sökum þá dæma þeir hvorugan úrslitaleik Eimskipsbikarsins í meistaraflokki karla og kvenna sem fram fer í Laugardalshöll á laugardaginn.
Í Póllandi hitta Anton og Hlynur Þóri Ólafsson, landsliðsmann í handknattleik, sem leikur með Kielce-liðinu sem á góðan möguleika á að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







