Telja sig hafa getað fyllt Parken
Guðjón Valur Sigurðsson er einn fjögurra Íslendinga í herbúðum stórliðsins AG Köbenhavn. www.agkbh.dk
Gríðarlegur áhugi eru fyrir uppgjöri toppliðanna í D-riðli Meistaradeild Evrópu í handknattleik karla á sunnudaginn en þá leiða „Íslendingaliðin“ AG Köbehavn og Kiel saman hesta sína í Brøndby-höllinni í Kaupmannahöfn.
Uppselt er á leikinn fyrir nokkrum vikum en íþróttahöllin rúmar sjö þúsund áhorfendur í sæti. Søren Colding, framkvæmdastjóri AG, sagði við DR í gær að áhuginn væri slíkur að hann teldi að félagið hefði getað fyllt íþróttaleikvanginn Parken í Kaupmannahöfn eins og það gerði í vor þegar það lék um danska meistaratitilinn við Bjerringbr/Silkeborg. Þá seldi félagið rúmlega 36 þúsund aðgöngumiða.
„Það er alveg ótrúlegur áhugi fyrir leiknum. Við höfum ekki undan að svara fyrirspurnum fólks sem vill fá miða og ljóst að við hefðum getað selt margfalt fleiri aðgöngumiða,“ segir Colding sem aldrei hefur orðið var við eins mikinn áhuga almennings fyrir nokkrum leik í stuttri sögu AG.
Kiel, sem Alfreð Gíslason þjálfar og Aron Pálmarsson leikur með, er í efsta sæti riðilsins með 15 stig að loknum níu leikjum. AG, sem hefur innanborðs fjóra íslenska landsliðsmenn, Arnór Atlason, Guðjón Val Sigurðsson, Ólaf Stefánsson og Snorra Stein Guðjónsson, er einu stigi á eftir Kiel. Efsta sætið er mikilvægt því það gefur heimaleikjarétt í síðari leik 16 liða úrslitanna þegar útsláttarkeppnin tekur við.
Kiel vann fyrri leik liðanna naumlega, 28:26, á heimavelli skömmu fyrir jól. iben@mbl.is






