Það verður mjög gaman að taka á frænda

Einar Rafn Eiðsson (t.v.) og frændi hans Stefán Rafn Sigurmannsson. stækka

Einar Rafn Eiðsson (t.v.) og frændi hans Stefán Rafn Sigurmannsson. mbl.is/Golli

Einar Rafn Eiðsson, hornamaðurinn knái í liði Fram, verður í óvenjulegri stöðu þegar Fram mætir Haukum í úrslitaleik bikarkeppninnar í Laugardalshöllinni á laugardaginn. Einar Rafn er fæddur og uppalinn Haukamaður og hefur spilað með flestum leikmönnum Hauka í gegnum alla yngri flokka félagsins.

Hann ákvað að skipta yfir til Fram fyrir þremur árum og hefur staðið afar vel með Safamýrarliðinu en Einar Rafn er 22 ára gamall örvhentur hornamaður sem er afar lunkinn og nýtir færi sín að öllu jöfnu mjög vel.

„Ég lít ekki á mig sem Haukamann í dag en vissulega hef ég afar sterkar taugar til félagsins og ég neita því ekki að það verður svolítið skrýtið að spila bikarúrslitaleik á móti Haukum. Ég hef spilað með nær öllum leikmönnum Hauka og þá er Stefán Rafn Sigurmannsson, náfrændi minn. Það verður mjög gaman að taka á frænda í þessum leik. Nú er ég Framari og ég mun gera allt sem ég get til þess að við förum með sigur af hólmi,“ sagði Einar Rafn við Morgunblaðið.

Nánar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is