Lindberg hetja Hamburg

Hans Óttar Lindberg.
Hans Óttar Lindberg. AFP

Hinn hálf íslenski Hans Óttar Lindberg var hetja Hamburg í gærkvöldi þegar liðið bar sigurorð af Björgvin Gústavssyni og félögum hans í Mageburg í þýsku 1. deildinni í handknattleik.

Hans Óttar, sem er danskur landsliðsmaður, skoraði 9 mörk í leiknum en Hamburg tryggði sér sigur á lokasekúndum með marki frá króatíska landsliðsmanninum Blazenko Lackovic.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert