Gunnar: Mikilvægt að allir læri af þessu
Gunnar Berg Viktorsson, þjálfari Stjörnunnar, teflir fram ungu liði í undanúrslitaleiknum í Símabikarnum í kvöld gegn Akureyri. Leikmennirnir eru flestir í kringum tvítugt og allir nema tveir uppaldir Stjörnumenn. Gunnar segir menn vera með báða fætur á jörðinni og gera sér grein fyrir að við ramman reip verði að draga gegn úrvalsdeildarliði Akureyrar.
„Við förum í þennan leik til þess að hafa gaman af þessu og gera okkar besta. Mikilvægt er að læri af þessu og kynnist því hvernig er að spila stóran leik í Laugardalshöllinni og öðlist um leið jákvæða reynslu til að taka mér hver sem úrslitin verða,“ segir Gunnar Berg sem hefur reynslu af því að taka þátt í stórleikjum í bikarkeppninni sem leikmaður m.a. með Fram og Haukum.
„Auðvitað getur allt gerst í bikarleikjum en aðalatriðið er samt að menn fari ekki af stað með of miklar vonir því við verðum að nýta þennan leik sem ákveðinn stökkpall fyrir framhaldið í deildinni þar sem við erum í harðri baráttu um sæti í úrvalsdeildinni,“ segir Gunnar Berg Viktorsson, þjálfari Stjörnunnar.
Viðureign Stjörnunnar og Akureyrar í undanúrslitum Símabikarsins hefst í Laugardalshöll í kvöld klukkan 19.45.





