Íþróttir
|
Handbolti
| Morgunblaðið
| 8.3.2013
| 7:01
Róbert með sex í sigurleik
Róbert Gunnarsson skoraði sex mörk í gærkvöld þegar París Handball hélt áfram sigurgöngu sinni í frönsku 1. deildinni í handknattleik og vann Dunkerque, 30:25, á heimavelli.
Róbert var markahæstur í stjörnum prýddu liðinu ásamt Mikkel Hansen og Marko Kopljar sem gerðu líka 6 mörk hvor. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði eitt mark fyrir Parísarliðið sem er með 34 stig eftir 17 umferðir og níu stiga forskot á Montpellier sem kemur næst. vs@mbl.is
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




