Finnur tekur við karlaliði KR til fimm ára

Finnur Freyr Stefánsson.
Finnur Freyr Stefánsson. mbl.is/Ómar

Finnur Freyr Stefánsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla í körfuknattleik hjá KR til næstu fimm ára en körfuknattleiksdeild félagsins sendi frá sér tilkynningu þess efnis fyrir stundu.

Finnur er 29 ára gamall Vesturbæingur sem lék með yngri flokkum KR á sínum tíma en er nú að hefja sitt fjórtánda ár sem þjálfari hjá félaginu. Hann var þjálfari kvennaliðs KR í vetur og kom síðan að karlaliðinu sem aðstoðarþjálfari á lokaspretti Íslandsmótsins.

Í tilkynningu KR-inga segir m.a.:

Stjórn kkd KR og Finnur Freyr Stefánsson hafa í meginatriðum komist að samkomulagi um að Finnur verði þjálfari meistaraflokks karla næstu fimm árin. Finnur heldur utan til Svíþjóðar í tvær vikur í fyrramálið með u-16 ára landsliðs Íslands og er stefnt að undirskrift þegar hann kemur til baka. 

Auk þess að þjálfa meistaraflokk karla mun Finnur vera yfirþjálfari yngri flokka. Eins og fyrr sagði er samningurinn til fimm ára og er lengd samningsins til marks um trú félagsins á Finni. Er honum ætlað að byggja upp öflugt þjálfarateymi sem vinnur eftir námskrá félagsins í kennslu og þjálfun. Deildin mun vinna eftir skýrri stefnu sinni sem byggir á að KR verði sem fyrr leiðandi í íslenskum körfuknattleik. 

Þessa dagana er verið að leita af öflugum eftirmanni fyrir Finn til að taka við meistaraflokki kvenna. Einnig mun skýrast á næstu dögum og viku hvernig leikmannahópar beggja meistaraflokka verða skipaðir en stefnt er að því halda að mestu óbreyttu liði, með fáeinum mögulegum viðbótum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert