Atli Ævar í liði umferðarinnar

Atli Ævar Ingólfsson, línumaður, er í liði sjöttu umferðar í …
Atli Ævar Ingólfsson, línumaður, er í liði sjöttu umferðar í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Ómar Óskarsson

Línumaðurinn Atli Ævar Ingólfsson er í liði 6. umferðar í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik en það er vefur hbold.dk sem tekur liðið saman.  Atli Ævar, sem leikur með Nordsjælland Håndbold, skaraði fram úr hjá liðinu sínu þegar það tapaði fyrir Århus Håndbold og skoraði m.a. fjögur mörk.

Atli Ævar er eini Íslendingurinn í liði umferðarinnar að þessu sinni. Þetta er í fyrsta sem hann er valinn í lið umferðarinnar á þessari leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert