ÍBV var í kvöld fyrsta liðið sem tryggir sér þátttökurétt í undanúrslitum úrslitakeppni Íslandsmóts kvenna í handknattleik. ÍBV sgiraði FH, 21:19 í Kaplakrika í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum í kvöld og vann einvígi liðanna um leið, 2:0.
Leikurinn var nokkuð jafn fyrstu 25 mínúturnar, en þá náðu Eyjakonur frumkvæðinu og leiddu með þremur mörkum að loknum fyrri hálfleik, 12:9.
ÍBV þurfti svo sannarlega að hafa fyrir hlutunum í síðari hálfleik. FH gaf Eyjakonum lítið eftir og spenna í leiknum allt þar til tæpar tvær mínútur voru eftir af honum. Þá kom Ester Óskarsdóttir ÍBV þremur mörkum yfir, 20:17 og fór um leið langt með að tryggja ÍBV sigurinn. Úrslitin urðu svo 21:19.
Fylgst var með gangi mála í leiknum í beinni textalýsingu á mbl.is og má sjá hana hér fyrir neðan.
FH | 19:21 | ÍBV | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
60. mín. Ester Óskarsdóttir (ÍBV) skoraði mark Skorar í autt markið. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |