Anton markahæstur – Guðmundur hólpinn

Anton Rúnarsson var markahæstur í sigri Nordsjælland.
Anton Rúnarsson var markahæstur í sigri Nordsjælland. Ljósmynd/nordsjaelland-haandbold.dk

Nordsjælland heldur enn í vonina að vera áfram á meðal þeirra bestu í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik eftir sigur á Odder, 30:25, í umspilsleik í dag.

Anton Rúnarsson var markahæstur í liði Nordsjælland með tólf mörk og Atli Ævar Ingólfsson kom þar á eftir með fimm mörk. Sigurinn gerir það að verkum að liðið hefur þrjú stig í umspilsriðli og getur enn haldið sæti sínu.

Guðmundur Árni Ólafsson skoraði fjögur mörk fyrir Mors-Thy sem vann stórsigur á Sydhavsöerne, 27:13, og tryggði þar með sæti sitt í deildinni á næstu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert