Flensburg í úrslit á kostnað Löwen

Alexander Petersson skoraði sex mörk en það dugði ekki til.
Alexander Petersson skoraði sex mörk en það dugði ekki til. Ljósmynd/RN Löwen

Flensburg er komið í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í handknattleik eftir sigur á Rhein-Neckar Löwen í fyrri undanúrslitaleiknum í dag, 30:26.

Flensburg hafði yfirhöndina frá upphafi og Löwen komst raunar bara einu sinni yfir, og það var í stöðunni 1:0. Flensburg hafði fjögurra marka forskot í hálfleik, 16:12, og náði sex marka forskoti í síðari hálfleik áður en Löwen minnkaði muninn á ný.

Alexander Petersson skoraði sex mörk fyrir lærisveina Guðmundar Guðmundssonar í Löwen og Stefán Rafn Sigurmannsson eitt. Ólafur Gústafsson komst ekki á blað fyrir Flensburg.

Liðið mætir annað hvort Melsungen eða lærisveinum Dags Sigurðssonar í Füchse Berlin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert