Füchse Berlín undir stjórn Dags Sigurðssonar varð í dag þýskur bikarmeistari í handknattleik eftir sigur á Flensburg í úrslitum 22:21. Þetta er fyrsti titill Berlínar-refanna undir stjórn Dags og það sem meira er, þá er þetta fyrsti titillinn sem félagið vinnur í handknattleik.
Leikurinn var jafn og ákaflega spennandi og hálfleikstölur voru 11:11. í stöðunni 22:21 fyrir Berlínarliðið varði Silvio Heinevetter markvörður Füchse Berlínar skot frá Holger Glandorf skyttu Flensburgar. Füchse fór í sókn, tókst ekki að skora, en úrslitin voru ljós, 22:21 fyrir Füchse Berlín sem er þar með þýskur bikarmeistari.
Jesper Nielsen var markahæstur í liði Füchse Berlínar með 9 mörk og Iker Romero skoraði 4. Silvio Heinevetter varði 16 skot. Hjá Flensburg var Thomas Mogensen markahæstur með 6 mörk, en Ólafur Gústafsson var ekki meðal markaskorara liðsins.