Ragnar: Allt að smella

„Þetta var bara ótrúlega skemmtilegur leikur og góð tilfinning að hafa klárað leikinn með sigri,“ sagði Ragnar Jóhannsson besti leikmaður FH í kvöld í sigrinum á ÍR, 28:27 í lokaumferð Olísdeildar karla í handknattleik. FH tryggði sér með sigrinum 4. sætið í deildinni og þar með sæti í úrslitakeppni Íslandsmótsins þar sem FH mætir Haukum í undanúrslitum.

„Þetta er að smella hjá mér núna eftir meiðsli sem ég varð fyrir, fyrir áramót,“ sagði Ragnar í viðtali við mbl.is eftir leikinn í kvöld og telur sig hafa gefið tóninn fyrir úrslitakeppnina með leik sínum í kvöld. Hann var markahæstur í liði FH með 9 mörk gegn ÍR.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert