Omeyer og Accambray fara til Paris Handball

Thierry Omeyer.
Thierry Omeyer. AFP

Franska handknattleiksliðið Paris Handball sem landsliðsmennirnir Róbert Gunnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson tilkynnti á vef sínum í dag að það hafi gengið frá samningum við frönsku landsliðsmennina Thierry Omeyer og William Accambray.

Leikmennirnir báðir spila með Montpellier en mun ganga í raðir Parísarliðsins í sumar. Samningur markvarðarins Thierry Omeyer mun gilda til ársins 2016 en samningur stórskyttunnar William Accambray mun gilda til ársins 2017.

Róbert verður áfram í herbúðum Paris á næsta tímabili en Ásgeir Örn yfirgefur félagið í sumar en hann hefur gert samning við franska liðið Nimes.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert