Naumt forskot hjá Flensburg

Ólafur Gústafsson.
Ólafur Gústafsson. Ljósmynd/Flensburg

Ólafur Gústafsson og samherjar hans í Flensburg fara með naum forskot í seinni leikinn við Vardar Skopje í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu um næstu helgi eftir tveggja marka sigur, 24:22, á heimavelli í dag.

Vardar var marki yfir í hálfeik, 14:13. Leikmenn Flensburg geta þakkað markverðinum Sören Rasmussen fyrir sigurinn í dag en hann varði vel. 

Ólafur var í liði Flesburg en skoraði ekki mark. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert