Lackovic til Makedóníu

Blazenko Lackovic t.v. í baráttu við Vigni Svavarsson í landsleik …
Blazenko Lackovic t.v. í baráttu við Vigni Svavarsson í landsleik Íslendinga og Króata á EM 2012. Reuters

Króatíski handknattleiksmaðurinn, Blazenko Lackovic, hefur ákveðið að ganga til liðs við Vardar Skopje í sumar eftir að hafa verið í tíu ár í Þýskalandi, nú síðasta með Evrópumeisturum HSV Hamburg. 

Lackovic, sem er 33 ára gamall, skrifaði undir þriggja ára samning við Vardar-liðið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert