Eyjakonur fara til Ítalíu

Ester Óskarsdóttir og samherjar í ÍBV fara til Ítalíu.
Ester Óskarsdóttir og samherjar í ÍBV fara til Ítalíu. mbl.is/Kristinn

Kvennalið ÍBV í handknattleik mætir Salerno frá Ítalíu í 2. umferð í EHF-bikar kvenna en dregið var til hennar rétt í þessu.

Salerno er frá samnefndri borg á suðvesturströnd Ítalíu, skammt sunnan við Róm. Liðið varð ítalskur meistari bæði 2010 og 2011.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert