Eyjamenn mæta ísraelsku liði

Eyjamenn mæta liði frá Ísrael.
Eyjamenn mæta liði frá Ísrael. mbl.is/Eggert

Íslandsmeistarar ÍBV í karlaflokki mæta Hapoel Rishon LeZion frá Ísrael í 2. umferðinni í EHF-bikar karla í handknattleik en dregið var til hennar rétt í þessu.

Liðið er frá borginni Rishon LeZion og varð síðast ísraelskur meistari á síðasta ári, 2013, og vann bikarinn síðast árið 2012. Félagið hefur samtals orðið meistari 16 sinnum, oftast allra liða í landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert