Haukarnir fara til Rússlands

Tjörvi Þorgeirsson og félagar í Haukum mæta rússnesku liði.
Tjörvi Þorgeirsson og félagar í Haukum mæta rússnesku liði. mbl.is/Kristinn

Karlalið Hauka í handknattleik mætir rússneska liðinu Zarja Kaspija Astrakhan frá Rússlandi í 2. umferð EHF-bikarsins en dregið var til hennar rétt í þessu.

Zarja Kaspija féll út í átta liða úrslitunum um rússneska meistaratitilinn í vor og hafnaði að lokum í 5. sæti.

Langt ferðalag bíður Haukanna en liðið er frá borginni Astrakhan við norðurströnd Kaspíahafsins, skammt frá landamærum Rússlands og Kasakstans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert