Megas er mótherji Framara

Ragnheiður Júlíusdóttir og samherjar í Fram fara til Grikklands.
Ragnheiður Júlíusdóttir og samherjar í Fram fara til Grikklands. mbl.is/Ómar

Kvennalið Fram í handknattleik mætir gríska liðinu Megas Alexandros í fyrstu umferðinni í Áskorendabikar Evrópu en dregið var rétt í þessu.

Megas Alexandros, eða Alexander mikli eins og nafn félagsins er á íslensku, er frá borginni Irakleia, nyrst í Grikklandi, skammt frá landamærunum við Búlgaríu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert