Þýska handknattleiksfélagið Emsdetten hefur verið dæmt til að greiða 2.500 evrur í sekt eða því sem nemur 400 þúsund krónum fyrir að hafa ekki greitt Akureyri og HSÍ uppeldisbætur fyrir Odd Gretarsson, þegar Oddur gekk í raðir félagsins í fyrra.
Evrópska handboltasambandið, EHF úrskurðaði 22. nóvember að Emsdetten bæri að greiða bæturnar. Emsdetten áfrýjaði þeim úrskurði til Áfrýjunardómstóls EHF, á þeim forsendum að uppeldisbætur Alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, brytu í bága við Bosman-regluna um frelsi leikmanna, og að HSÍ hefði ekki umboð til að krefjast uppeldisbóta fyrir hönd Akureyringa.
Emsdetten neitaði þó áfram að greiða og nú hefur EHF sektað Emsdetten um 2.500 evrur auk þess sem félagið verður á skilorði næstu tvö árin vegna málsins. Verði Emsdetten brotlegt með sambærilegum hætti á þeim tíma verður félaginu meinað að fá til sín leikmenn erlendis frá.
Á meðan málaferlunum stóð greiddi Emsdetten þó uppeldisbæturnar til Akureyrar og HSÍ, þannig það mál ætti að vera frá, en sektin stendur. Emsdetten hefur þó sjö daga til að áfrýja úrskurðinum um sektina.