Andri Heimir framlengir við meistaranna

Andri Heimir Friðriksson verður með Eyjamönnum í vetur.
Andri Heimir Friðriksson verður með Eyjamönnum í vetur. mbl.is/Ómar

Andri Heimir Friðriksson hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara ÍBV í handknattleik og mun spila með liðinu í vetur í Olís-deildinni, en hann var með lausan samning eftir síðasta tímabil.

Andri Heimir er skytta og hefur verið í herbúðum ÍBV síðustu ár en var frá vegna meiðsla um tíma á síðasta tímabili. „Það er erfitt að fara frá þessu félagi þegar búið er að gera þá að Íslandsmeisturum og koma þeim í Evrópukeppnina. Þetta er góð áskorun og góður stökkpallur ef maður ætlar eitthvað út,“ sagði Andri Heimir við Eyjafréttir eftir undirskriftina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert