Dagur: Krefjandi verkefni framundan

Dagur Sigurðsson.
Dagur Sigurðsson. AFP

„Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta. Það er auðvitað sárt að þurfa að yfirgefa Füchse Berlin en á móti kemur að ég er að fara í mjög skemmtilegt og áhugavert starf,“ sagði Dagur Sigurðsson við Morgunblaðið í gær, skömmu eftir að hafa gert samning við þýska handknattleikssambandið um að taka við þjálfun landsliðsins.

Dagur, sem tekur formlega til starfa hinn 1. september, samdi til ársins 2017 með möguleika á framlengingu til ársins 2020. Hann mun áfram stýra liði Füchse Berlin á komandi leiktíð en yfirgefur Berlínarliðið í júní á næsta ári. Dagur hefur stýrt liði Füchse Berlin frá árinu 2009 með frábærum árangri, en liðið varð þýskur bikarmeistari síðastliðið vor.

Fyrsta árið strembið

„Ramminn í þessum samningi er til 2020 en hann er uppsegjanlegur hvenær sem er. Þetta ræðst allt af árangri og við vitum að þjálfarastarfið er fallvalt. Ég geri mér grein fyrir því að ég er að fara í mjög krefjandi starf og það verður strembið fyrsta árið þar sem ég verð líka hjá Füchse. Það er ekki alveg nýtt fyrir mig að þjálfa félagslið og landslið á sama tíma. Ég gerði það í Austurríki. Þýska landsliðið hefur lifað svolítið á fornri frægð og menn hafa sofið töluvert á verðinum frá því að liðið vann heimsmeistaratitilinn árið 2007,“ segir Dagur, en hann segir að starfið leggist vel í sig.

„Ég veit að ég er með mjög góðan stuðning í kringum mig svo að ég er hvergi banginn. Það er alveg óhætt að segja að það hafi verið talsverður vandræðagangur á þýska landsliðinu á síðustu árum. Rót vandans er að mínu mati sú að liðið hefur ekki unnið nógu marga leiki undanfarin ár og því þarf að breyta. Hlutverk mitt er að koma sigurhefð í landsliðið og vonandi tekst mér það,“ segir Dagur.

Sjá allt viðtalið við dag í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert