Sigríður ver mark FH-inga

Sigríður Arnfjörð Ólafsdóttir og Ásgeir Jónsson eftir undirskrift.
Sigríður Arnfjörð Ólafsdóttir og Ásgeir Jónsson eftir undirskrift.

Markvörðurinn Sigríður Arnfjörð Ólafsdóttir er gengin í raðið FH-inga og mun leika með liðinu á komandi tímabili í Olís-deild kvenna í handknattleik. 

Sigríður var Íslandsmeistari með Val í fyrra, en þar hefur hún leikið síðustu ár.

„Það er ánægjulegt að fá Sigríði aftur í FH, hér á hún heima, hún smellpassar inní okkar hóp, góður leikmaður og frábær karakter. Það er metnaður hjá okkur FH-ingum að gera vel í Olísdeild kvenna næsta vetur. Að fá Sigríði til liðs við okkur er stórt skref í þá átt.

Við erum með ungt og efnilegt lið. Stelpurnar eru á fullu að æfa og er gaman að fylgjast með þeim þessar vikurnar, þvílíkt einbeittar og áhugasamar fyrir komandi tímabili,“ segir Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar FH.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert