Elva Björg komin aftur til HK

Elvar Björg Arnarsdóttir og Hilmar Guðlaugsson þjálfari HK.
Elvar Björg Arnarsdóttir og Hilmar Guðlaugsson þjálfari HK. Ljósmynd/HK

Elva Björg Arnarsdóttir hefur samið við HK um að leika með félaginu í Olís-deild kvenna í handbolta í vetur. Elva lék með HK á árunum 2006-2012 en hélt þá til náms í Svíþjóð, en er nú komin heim og hefur gert tveggja ára samning við HK.

Samhliða náminu í Svíþjóð lék hún handbolta með H65 Höör 2012-2013 og síðasta vetur með KFUM Lundgard.

Elva Björg er úr mikilli íþróttafjölskyldu því bræður hennar eru Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis í Pepsi-deild karla í knattspyrnu og Guðlaugur Arnarsson þjálfari Fram í Olís-deild karla í handbolta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert