Fram lagði Fjölni á Reykjavíkurmótinu

Garðar Sigurjónsson skoraði 5 mörk fyrir Framara.
Garðar Sigurjónsson skoraði 5 mörk fyrir Framara. mbl.is/Ómar

Reykjavíkurmót karla í handknattleik hófst í gærkvöld með viðureign Fram og Fjölnis. Framarar fögnuðu þar fjögurra marka sigri, 23:18.

Framarar voru fjórum mörkum yfir eftir fyrri hálfleikinn, 13:9, og héldu fengnum hlut í þeim síðari.

Mörk Fjölnis: Brynjar Loftsson 6, Björgvin Páll Rúnarsson 4, Elvar Magnússon 2, Bjarni Ólafsson 2 og Bergur Snorrason 2, Sveinn Þorgeirsson 1 Breki Dagsson 1.

Mörk Fram: Garðar B. Sigurjónsson 5, Stefán B. Stefánsson 4 Þröstur Bjarkarsson 4, Stefán Darri Þórsson 3, Arnar Freyr Ársælsson 3, Þorri Gunnarsson 2, Ragnar Kjartansson 1

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert