Elísabet í Fram á nýjan leik

Elísabet Gunnarsdóttir, bláklædd fyrir miðri mynd, verður í eldlínunni með …
Elísabet Gunnarsdóttir, bláklædd fyrir miðri mynd, verður í eldlínunni með Fram á næsta keppnistímabili í Olís-deild kvenna. mbl.is/Árni Sæberg

Elísabet Gunnarsdóttir, línumaðurinn sterki, hefur ákveðið að ganga til liðs við Fram á nýjan leik eftir eins árs veru í Stjörnunni. Hún lék reyndar ekkert með Stjörnunni á síðasta leiktímabili í Olís-deild kvenna þar sem hún eignaðist barn á meðan keppnistímabilið stóð yfir.

Þetta hefur mbl.is samkvæmt heimildum. Elísabet lék árum saman með Fram og var m.a. í Íslandsmeistaraliðinu vorið 2013. Þá á hún einnig að baki 63-landsleiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert