Rhein-Neckar Löwen vann annan leik sinn í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld þegar liðið lagði Bietigheim, 32:22, á útivelli eftir að hafa aðeins verið marki yfir í hálfleik, 11:10.
Alexander Petersson skoraði fjögur mörk fyrir Löwen og Stefán Rafn Sigurmannsson var með tvö mörk.
Löwen hefur þar með fullt hús stiga eftir tvo fyrstu leikina eins og Melsungen.