Erlingur byrjar á sigri

Erlingur Richardsson, þjálfari Westiwen í Austurríki.
Erlingur Richardsson, þjálfari Westiwen í Austurríki. mbl.is/Árni

Erlingur Richardsson og lærisveinar hans í austurríska liðinu Westwien hefja keppnistímabilið af krafti. Í gærkvöldi unnu þeir Bärnbach/Köflach, 37:35, í hörkuleik á heimavelli í fyrstu umferð austurríski A-deildarinnar í handknattleik.

Westiwen var með sex marka forskot í hálfleik, 19:13.

Þetta er annað keppnistímabilið sem Erlingur þjálfar austurríska liðið. Undir hans stjórn komst það í undanúrslit um austurríska meistaratitilinn á síðasta keppnistímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert