Löwen tapaði fyrir Bergischer

Arnór Þór Gunnarsson skoraði 3 mörk fyrir Bergischer.
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 3 mörk fyrir Bergischer. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Bergischer gerði sér lítið fyrir og sigraði Rhein-Neckar Löwen, 24:23, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld.

Markvörðurinn Björgvin Gústafsson leikur með Bergischer sem og hornamaðurinn Arnór Þór Gunnarsson en hann skoraði 3 af mörkum liðsins. Alexander Petersson skoraði 4 mörk fyrir Löwen en Stefán Rafn Sigurmannsson ekkert.

Gunnar Steinn Jónsson skoraði eitt mark fyrir Gummersbach í sigri liðsins á Bietigheim, 35:29.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert