Einar: Þeir voru ekki betri

ÍBV féll úr keppni í EHF bikarnum í dag þegar liðið tapaði öðrum leiknum gegn Maccabi frá Ísrael. Einar Sverrisson var markahæstur hjá ÍBV með sjö mörk en hann var ekki sammála því að ísraelska liðið hefði verið betra.

„Ég vil ekki meina það.  Ég held að það hafi verið eins og Gunni var að segja inn í klefa að markvörðurinn hjá þeim var að verja dauðafæri og mikilvæg skot frá okkur.  Við eigum alveg fullt erindi í þá, komumst fjórum mörkum yfir en vorum í basli með að halda forystunni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert