Einar og félagar voru klaufar

Einar Rafn Eiðsson.
Einar Rafn Eiðsson. mbl.is/Árni Sæberg

Leikmenn Nøtterøy, sem Einar Rafn Eiðsson og Gísli Jón Þórisson leika með í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik, töpuð klaufalega á heimavelli í kvöld fyrir Lillestrøm, 23:21. Skömmu fyrir leikslok voru leikmenn Nøtterøy með tveggja marka forskot, 21:19. Gestirnir skoruðu hinsvegar fjögur síðustu mörk leiksins. 

Einar Rafn skoraði fimm mörk en Gísli Jón var ekki á meðal markaskorara liðsins. Nøtterøy hefur þar með tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í deildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert