Fjögurra marka sigur Akureyringa

Kristján Orri Jóhannsson var markahæstur Akureyringa í kvöld.
Kristján Orri Jóhannsson var markahæstur Akureyringa í kvöld. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

Akureyringar sigruðu HK, 25:21, í fyrstu umferð Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld þegar liðin mættust í Digranesi í Kópavogi.

Norðanmenn gerðu nánast út um leikinn í fyrri hálfleik þegar þeir skoruðu sex mörk í röð og komust í 12:4. HK minnkaði muninn í 13:9 fyrir hlé en Akureyringar héldu nokkuð öruggu forskoti allan seinni hálfleikinn, voru átta mörkum yfir um tíma. HK lagaði aftur stöðuna og hún var 23:19 þegar hálf þriðja mínúta var eftir en nær komst Kópavogsliðið ekki.

Mörk HK: Guðni Már Kristinsson 8, Óðinn Þór Ríkharðsson 3, Leó Snær Pétursson 3, Tryggvi Þór Tryggvason 2, Þorkell Magnússon 2, Þorgrímur Smári Ólafsson 2, Aron Gauti Óskarsson 1.

Mörk Akureyrar: Kristján Orri Jóhannsson 7, Brynjar Hólm Grétarsson 5, Elías Már Halldórsson 3, Þrándur Gíslason 3, Heiðar Þór Aðalsteinsson 2, Ingimundur Ingimundarson 2, Andri Snær Stefánsson 1, Halldór Logi Árnason 1, Sigþór Árni Heimisson 1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert