ÍR og Valur skildu jöfn, 23:23, í fyrstu umferð Olísdeildar karla í handknattleik í Austurbergi í kvöld en þar gerðu ÍR-ingar síðustu fjögur mörkin í leiknum.
Fyrri hálfleikur var jafn lengi vel en Valsmenn brunuðu framúr á síðustu mínútum hans og voru með fimm marka forskot í hálfleik, 16:11.
Hlíðarendaliðið skoraði hinsvegar aðeins sjö mörk í seinni hálfleiknum en var yfir, 23:19, þegar fimm mínútur voru eftir. ÍR-ingar gáfust hinsvegar ekki upp og Björgvin Þór Hólmgeirsson jafnaði metin nokkrum sekúndum fyrir leikslok, 23:23.
Mörk ÍR: Björgvin Hólmgeirsson 7, Sturla Ásgeirsson 6, Arnar Birkir Hálfdánsson 3, Jón Heiðar Gunnarsson 2, Davíð Georgsson 2, Bjarni Fritzson 2, Eggert Sveinn Jóhannsson 1.
Mörk Vals: Guðmundur Hólmar Helgason 6, Finnur Ingi Stefánsson 5, Vignir Stefánsson 3, Kári Kristján Kristjánsson 2, Elvar Friðriksson 2, Alexander Örn Júlíusson 2, Geir Guðmundsson 2, Orri Freyr Gíslason 1.