Halldór: Börðumst vel fyrir stiginu

„Ég held að þetta hafi verið unnið stig fyrir okkur og við börðumst vel fyrir því, en það eru alltof margar gloppur í okkar leik. Við náðum okkur ekki á strik stóran hluta leiks,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari FH eftir jafntefli við ÍBV, 29:29 í 1. umferð Olís-deildar karla í handbolta í Kaplakrika í kvöld.

„Við vorum góðir inn á milli í sókninni, en hins vegar með alltof marga tapaða bolta. En þetta er bara eitthvað sem við þurfum að vinna í og laga fyrir næsta leik,“ sagði Halldór við mbl.is eftir leikinn í kvöld.

Viðtalið við Halldór Jóhann má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert