Þriggja marka sigur Fram á Akureyri

Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Fram í kvöld.
Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Fram í kvöld. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

Framkonur eru með fullt hús stiga að loknum tveimur leikjum í Olís-deild kvenna í handbolta, eftir þriggja marka sigur á KA/Þór á Akureyri í kvöld, í fyrsta leik 2. umferðar í deildinni. Leiknum lauk 22:19 fyrir Fram en hálfleikstölur voru 13:9 fyrir gestina að sunnan.

Ragnheiður Júlíusdóttir og Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir voru markahæstar hjá Fram með 4 mörk hvor, en markaskorun dreifðist nokkuð jafnt hjá Frömurum. Hjá KA/Þór var Martha Hermannsdóttir eins og svo oft áður atkvæðamest. Hún skoraði 6 mörk í kvöld.

Mörk KA/Þórs: Martha Hermannsdóttir 6, Katrín Vilhjálmsdóttir 5, Paula Chirila 3, Birta Fönn Sveinsdóttir 3, Laufey Lára Höskuldsdóttir 1, Harpa Rut Jónsdóttir 1.

Mörk Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 4, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 4, Marthe Sördal 3, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 3, Elísabet Gunnarsdóttir 3, María Karlsdóttir 3, Steinunn Björnsdóttir 2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert