Vignir með 3 mörk í jafntefli

Vignir Svavarsson.
Vignir Svavarsson. mbl.is/Eva Björk

Vignir Svavarsson skoraði 3 mörk fyrir Midtjylland þegar lið hans gerði jafntefli við Team Tvis Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld í leik sem lauk 23:23.

Midtjylland er í 2. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með 7 stig að loknum fimm umferðum en Kolding Köbenhavn sem leikur undir stjórn íslenska landsliðsþjálfarans, Arons Kristjánssonar trónir á toppnum með 9 stig.

Vignir gekk í raðir Midtjylland fyrir þessa leiktíð frá Minden í Þýskalandi. Hann hefur farið ágætlega af stað með liðinu og hefur skorað 10 mörk í þessum fyrstu fimm deildarleikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert