Árni Steinn: Lélegir í 45 mínútur af 60

Árni Steinn Steinþórsson vinstri handarskyttan öfluga í liði Hauka var ekki sáttur við leik síns liðs gegn FH í kvöld en Haukarnir urðu að sætta sig við eins marks tap gegn erkifjendunum þegar þau áttust við í Kaplakrika.

„Við vorum bara lélegir í 45 mínútur af 60 og það er möguleiki á að vinna FH með því að spila bara vel í 15 mínútur. Við náðum eiginlega aldrei að komast inn í leikinn. Við hefðum að vísu getað stolið þessu en gerðum klaufaleg mistök,“ sagði Árni Steinn við mbl.is eftir leikinn en allt viðtalið við hann er í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert